Nýverið voru inntökuprufur í dansdeild LHÍ, 11 manns fengu inngöngu í deildina en ef þeim eru 7 þeirra fyrrum Spiral meðlimir!
Við viljum óska Brynju Bjarnadóttur, Eydísi Rose Vilmundardóttur, Gerði Guðjónsdóttur, Þórunni Ylfu Bryjnólfsdóttiur, Unu Björg Bjarnadóttur, Magneu Ýr Gylfadóttur og Viktori Leifssyni innilegar hamingjuóskir með árangurinn.
Spiral dansflokkurinn var heppin að fá svona hæfileikaríkt fólk!
Gangi ykkur allt í haginn og hlökkum til að fylgjast með ykkur halda áfram að blómstra.
- 27 February 2012
- Permalink

Discomfort in Comfort
Okkur dreymir. Vid tökum áhættur. Vid komum heim i lok dags.
Fólk leitar oft eftir áskorandi lífsgildum, þeirri tilfinningu að tilheyra og stöðugleika annars vegar og nýrri reynslu og áskorunum hins vegar. Til að þróa þetta er sagt að við þurfum að stækka þægindarammann með því að gera hluti sem okkur þykir óþægilegir.
Dansupplifun þar sem áhorfendur sjá spennuna á milli áhættu og einfaldleika.
Verk eftir danshöfundinn Karen Eide Bøen ì samvinnu vid þrettán dansara Spiral dansflokksins.
Sýningar: 8., 9., og 10. mars 2012
Tímasetning: 19:00
Verð: 1.200 kr. (1.000 kr. fyrir námsmenn)
Staðsetning: Norðurpólinn Leikhús
Svidsmynd Særòs Rannveig Björnsdòttir, búningar Ninna Thórarinsdòttir og tónlist Lilja Björk Runòlfsdòttir og Jaime Oliveros.
Miðasala hefst miðvikudaginn 29. mars.
http://miði.is/forsida/
- 9 February 2012
- Permalink
Spiral dansflokkurinn vinnur hörðum höndum þessa dagana að verki eftir Karen Eide Bøen í samvinnu með dönsurum, leikurum, búningahönnuðum, sviðmyndahönnuðum og tónlistarfólki. Áætlað er að sýna verkið í mars því er mikil vinna framundan hjá okkur.
Sjá nánar meðlimi flokksins hér.